Við erum komnar aftur heim á blogcentral!!
Við erum smám saman að gera upp gömlu síðuna, erum búnar að eyða út öllu nema þessari einu færslu á undan en ég gat bara ekki eytt henni, endurgerð á vísunni er bara snilld
En helgin var bara æði, Rut kom að norðan á fimmtudaginn, við fórum á flakk og gerðum ýmislegt, á föstudeginum var ég svo að vinna frá 8-22 og eftir það komu Arndís, Anna Bína og Bryngerður og gistu líka hérna, ég fékk lánaða uppblásnu dýnuna hennar Ellenar og var ekki ákveðið að blása hana upp fyrir en seint um nóttina (stór mistök!!) þar sem lætin í pumpunni er svo gríðarlega mikill, ég ætlaði bara ekki að trúa því! Ég hef bara aldrei heyrt svo há óhljóð úr svona litlu tæki, við Arndís urðum báðar að leggjast nánast á tækið með kodda og nefnið það til að deyfa óhljóðin. Við fórum svo seeint á fætur þar sem við lágum andvaka og að slúðra til fimm um morguninn. Á laugardeginum fór ég með Rut út í ríkið og að fá okkur að borða svo var farið heim, í sturtu og byrjað að djúsa.
Við fórum á players um níuleytið, Gummi bróðir Önnu Bínu og Arndísar kom og náði í okkur Önnu, Bryngerði og mig, en Arndís, Rut og Teddi fóru í Hafnarfjörðinn að ná í Be. Við hittumst svo stuttu seinna á players, þar hittum við fyrir fólk sem við höfðum ekki séð í lengri tíma; Lilju Björns, Sigrúnu, Bjarna kokk, Gumma & Zacharinu (ekki alveg viss hvernig á að skrifa nafnið hennar hehe), Ástu, Önnu, Jón Hall, Beggu, Hrönn, Hajir og marga marga fleiri yrði allan daginn að telja upp alla sem við hittum á players

Við dönsuðum aðeins og spjölluðum við allt fólkið enda hafði fólkið um margt að spjalla eftir svona langan tíma, sumir fórum heim til Be í tælenskan mat (ég verð að eiga það inni hjá henni) ég fann ekki fólkið og ákvað að labba bara heim, hélt nú reyndar að leiðin heim væri ekki nema 1/3 af leiðinni, en mér skjátlaðist nú aðeins

Ekki alveg nógu vel áttuð í borginni. Sunnudagurinn fór í þynnku og vinnu hjá mér. Áður en ég fór í vinnu fórum við Rut, Anna Bína, Jón Hallur og Bryngerður á hróa hött og fengum okkur að borða, svo skutlaði Rut mér í vinnuna og hélt heim á leið á eyrina. Nú tekur bara vinnan og lærdómurinn við

En til hamingju með nýju vinnuna Rut mín!!
Ólöf K